Verkstæðið
- Staðsetning
- Bílheimar, Stekkjarbakki 6, 109 Reykjavík
- Opnunartími
- Enungis samkvæmt samkomulagi
- Sími
- 895 4644
Hafa samband
Verðið ræðst af umfangi. Skoðun á staðnum tryggir bestu lausnina. Bókaðu tíma með því að hringja, senda okkur línu eða mæta í húsnæði okkar í Bílheimum, Stekkjarbakka 6, Reykjavík
Skrifaðu stutta lýsingu af tjóninu og sendu myndir – og við reynum að svara samdægurs.
Sýnishorn
Smáréttingar ehf.
Frá 2004 höfum við sérhæft okkur í þjónustu við kröfuharða bíleigendur um allt er varðar viðgerðir á ýmiskonar smátjónum. Auk þess bjóðum við ryðhreinsun, rispuviðgerðir og blettun. Einnig allskonar margþátta yfirborðmeðferðir á bílnum, t.d. mössun og bryngljáa. Loks má nefna framljósafrískun sem endurheimtir fyrra útlit og birtu mattra ljósa. Við höfum þjónustað öll bílaumboð landsins og allflestar bílaleigur í gegnum tíðina.
Hringdu
+354 895 4644Verkstæði
Bílheimar, Stekkjarbakki 6, Kópavogi Opið: Einungis samkvæmt samkomulagiNálgun
Við notum bestu fáanlegu efni hverju sinni og búum að reynslu sem tryggir stöðug gæði.
Allir bílar dældast.
Íslensk bílastæði, Suð-vestan áttin, flugeldar, golfkúlur og grýlukerti sjá til þess. Svo eitthvað sé nefnt. Við fjarlægjum smádældir án þess að mála. Smárétting er einföld, fljótleg og ódýr lausn sem endurheimtir upprunalegt útlit bílsins. Við færum færleikann í fyrra horf sem eykur endursöluverð og uppítökuvirði hans. Að láta okkur fjarlægja dældir fyrir söluskoðun er sennilega einhver þénugasta aðgerð sem hver bíleigandi getur ráðist í.
Það er bara þannig.
Allir bílar rispast.
Þvottur og bón ríspa bíla. Íslensk veðrátta, salt, sandur og allskonar önnur yfirborðsefni gera yfirborðið matt og hrufótt. Sem síðan gera frekari þrif og bón erfiðari. Að massa er að fægja yfirborð bílsins. Mössun eyðir grunnum rispum, fjarlægir óhreinindi og endurheimtir upprunalegan gljáa lakksins. Það mun síðan gera alla þvotta- og bónvinnu léttari og ánægjulegri í framtíðinni, svo ekki sé minnst á endursöluverðið.
Allir bílar ryðga.
Ísland sér til þess. Nýju vistvænu vatnslökkin og steinkastið hjálpa til. Vont verður bara verra. Við bjóðum inngrip til að hægja á þessari þróunn á meðan þú átt bílinn. Við hreinsum upp allt ryð, blett fyrir blett. Setjum í sárin allskonar fyrirvara og efni uns við lokum því með hárréttum lit og glæru. Kannski engin fegrunaraðgerð en sannarlega vitnisburðum um gott viðhald og metnað.
Ekki gera ekki neitt.
Allir bílar verða fyrir allskonar.
Mannanna verk og náttúran sjá til þess. Málningarúði, trákvoða og gamalar bilamerkingar, geta krafist aðgerða. Leirun, mössun eða aðrar sértækari lausnir eru í boði hjá okkur.
Öll plastljós verða mött.
Sólin sjálf, þrif og þvottar sjá til þess. Mött framljós eru hættuleg, bæði þér og umhverfi þínu. Mött ljós eru tilefni til endurskoðunar. Ný ljós eru rándýr og fást ekki í kaupfélaginu. Við getum endurheimt upprunalegt útlit ljósanna, birtu þeirra og öryggi þitt í umferðinni. Fyrir brotabrot af endurnýjunarvirðinu.
Kannaðu málið, vertu upplýstur.
Gamli góði bryngljáinn.
Höfum boðið þessa lakkvörn frá fyrstu tíð. Engin framandi nanó- eða grafíttækni hér á ferð. Bara gamla góða Mjallarbónið í ellefta veldi. Segja ráðherrabílstjórar okkur. Seljum það sannarlega ekki dýrara verði en það var keypt. Firnaterk vörn sem verndar yfirborð bílsins gegn íslenskum veðrabrigðum og framandi þvottakústum, varnar rispum, perlar vatn af yfirborðinu nánast endalaust og heldur glansinum lengi.
Sýnishorn
Við fjarlægjum dældir án þess að mála. Ódýr og fljótlegur valkostur. Alltaf ódýrari en sjálfsábyrgð tjónþola. Verndar endursöluvirði bílsins.
Af hverju við?
Við réttum bílinn samdægurs þegar hægt er og höfum áralanga reynslu í að gleðja kröfuharða bíleigendur, umboð og bílaleigur. Smáréttingar er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í að fjarlægja smádældir án málunar.